Norrænir leiðtogar íhaldsflokka ræddu uppgang popúlistaflokka

Frá fundinum í dag. Bjarni Benediktsson við hlið Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs og formanns Hægriflokksins þar í landi. Framkvæmdastjóri flokks hennar, John-Ragnar Aarset, situr við hennar hlið.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra sat í gær og í dag árlegan fund norrænna íhaldsleiðtoga sem að þessu sinni var haldinn í Helsinki.

Formennirnir ræddu uppgang öfga- og popúlistaflokka í Evrópu og sameiginlega afstöðu til að verja norræn gildi gagnvart málflutningi slíkra afla. Einnig voru til umræðu breytingar á pólitísku landslagi þar sem flokkum hefur fjölgað mjög á þjóðþingunum, að því er segir frá á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins.

Pólitísk og efnahagsleg áhrif útgöngu Breta úr ESB voru á dagskrá fundarins, sem og fjölþætt öryggismál og ógnir í tengslum við heimsókn formannanna í Hybrid CoE – The European Centre of Excellence for Countering Hybrid Threats sem er samstarfsverkefni ríkja sem eiga aðild að ESB eða NATO.