Nýr orkupakki ESB: Vilja færa ákvörðunarvaldið til Brussel

Orkumálastjóri Evrópusambandsins, Miguel Arias Cañete, sagði á blaðamannafundi í gær, að neitunarvald einstakra ríkja sé orðið algjörlega úrelt fyrirkomulag.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær hugmyndir um að færa ákvörðunarvald í orkumálum í auknum mæli frá einstökum aðildarríkjum og til Brussel.

Nýr orkupakki (sá fimmti) er í mótun hjá Evrópusambandinu (þann þriðja stendur til að innleiða hér á landi) og framkvæmdastjórn sambandsins hefur kynnt hugmyndir um að afnema neitunarvald einstakra ríkja þegar kemur að skattlagningu í orkumálum. Þess í stað er í undirbúningi að láta meirihluta aðildaríkja ráða í atkvæðagreiðslum sem byggir á fólksfjölda í hverju ríki fyrir sig. Það þýðir vitaskuld að fjölmennustu aðildarríki ESB munu ráða för í orkumálum, eins og víða annars staðar í ákvarðanatöku innan sambandins.

Orkumálastjóri Evrópusambandsins, Miguel Arias Cañete, sagði á blaðamannafundi í gær, að neitunarvald einstakra ríkja sé orðið algjörlega úrelt fyrirkomulag.

Sameiginleg markmið sambandsins í orkumálum hafi breyst hratt á undanförnum árum, til sögunnar séu komnir mengunarskattar og ekkert sé gert til að ýta undir endurnýjanlega orkugjafa meðan stórfé sé varið á ári hverju í niðurgreiðslu til jarðefnaeldsneytis.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nokkrum sinnum áður reynt að breyta orkutilskipuninni, en þeim tilraunum hefur jafnan verið hrundið af hálfu þjóða á borð við Pólland sem treysta á jarðefnaeldsneyti, að því er fram kemur í umfjöllun Forbes um málið.