Ásdís Ýr Pétursdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Icelandair Group. Hún tekur við af Guðjóni Arngrímssyni, sem snúið hefur til annarra verkefna.
Ásdís hefur yfir 15 ára reynslu á sviði samskipta- og kynningarmála, á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún hefur starfað sem ráðgjafi að undanförnu, en var sviðsstjóri samskiptasviðs hjá Actavis á Íslandi á árunum 2013 til 2017 og verkefnastjóri og síðar forstöðumaður samskiptasviðs hjá Bakkavör Group þar á undan.
Áður starfaði hún við markaðs- og kynningarmál hjá Háskólanum í Reykjavík og hjá alþjóðlegu tæknifyrirtæki í Bretlandi.
Ásdís er með BA próf í almannatengslum frá Mount Saint Vincent University í Kanada.