„Kynferðisleg áreitni er með öllu ólíðandi, óháð því hver birtingarmynd hennar er, hvar hún á sér stað og hver það er sem beitir henni. Að flokkur jafnarmanna, með forystukonur metoo-byltingarinnar innanborðs, flokkur sem segist berjast gegn kynbundnu ofbeldi, flokkur mannréttinda og femínískrar hugmyndafræði, skuli vera með fulltrúa á þingi sem hefur gerst sekur um kynferðislega áreitni er með öllu óásættanlegt og það er siðlaust. Það gerir lítið úr öllum þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í stjórnmálum og það gerir lítið úr raunum þolenda slíks ofbeldis. Flokkurinn getur ekki furðað sig á því að konur endist illa í ábyrgðarstöðum innan flokksins og á sama tíma boðið ítrekað upp á starfsumhverfi eins og þetta.“
Þetta segir Sema Erla Serdar, fv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, í stöðuuppfærslu á fésbókinni, þar sem hún gagnrýnir harðlega endurkomu Ágústs Ólafs Ágústssonar á þing eftir áfengismeðferðí kjölfar þess að hann var áminntur formlega af siðanefnd flokksins fyrir kynferðislega áreitni.
„Ég hef verið í Samfylkingunni í meira en áratug og gegnt hinum ýmsu ábyrgðarstöðum fyrir flokkinn, meðal annars stöðu formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Mér hefur oft misboðið meðvirknin og vinnubrögðin innan flokksins en sjaldan jafn mikið og nú. Að taka ekki skýra afstöðu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum tilvikum er hræsni. Ég er viss um að það myndi heyrast hærra í flokksfélögum mínum ef þingmaður annars flokks gerðist sekur um kynferðislega áreitni og sæti sem fastast á þingi. Hvað Ágúst Ólaf varðar getur hann beðið um annað tækifæri í prófkjöri flokksins og/eða hjá kjósendum í næstu kosningum. Samfélagsmiðlar duga bara ekki til,“ bætir Sema Erla við.
Hún viðurkennir að þetta sé kannski ekki vinsælasta skoðun dagsins hjá félögum sínum í Samfylkingunni, en ef ætlunin sé að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vettvangi stjórnamálanna og í samfélaginu öllu þurfi það að gerast af heilindum og hugrekki en ekki eftir hentugleika og því hver gerandinn er.
Samrýmist ekki femíniskum gildum hreyfingarinnar
Ungir jafnaðarmenn, sem er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, sendi sömuleiðis frá sér, ályktun í gær, þar sem endurkoma þingmannsins er gagnrýnd. Þar er skýrt frá því, að í janúar síðastliðnum hafi Ungir jafnaðarmenn beðið Ágúst Ólaf Ágústsson formlega um að segja af sér embætti sínu, vegna kynferðislegrar áreitni.
„Slík hegðun samrýmist ekki femíniskum gildum hreyfingarinnar. Ungir jafnaðarmenn fagna þeim verkferlum sem til staðar eru innan flokksins í málum sem þessum, sem eru jákvæðar breytingar í takt við kröfur #MeToobyltingarinnar. Af virðingu við hlutaðeigandi hugðust Ungir jafnaðarmenn ekki opinbera afstöðu sína í málinu en telja rétt að deila henni nú.
Það er krafa Ungra jafnaðarmanna að allir kjörnir fulltrúar þjóðarinnar hagi sér af betri háttsemi en hefur fengið að líðast. Breytingar þurfa að eiga sér stað í stjórnmálamenningunni,“ segir í yfirlýsingunni.