Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um nálægt 34% það sem af er ári eftir verulega lækkun undir lok síðasta árs.
Verð á Brent-olíu fór í tæpan 71 Bandaríkjadal á fatið í byrjun apríl en verðið hafði ekki farið yfir 70 dali síðan 12. nóvember síðastliðinn, að því er greiningardeild Landsbankans skýrir frá.
Frá þeim tímapunkti fór verðið lægst niður í rúma 53 dali í lok árs en hefur hækkað síðan. Verðið var um 61 dalur í byrjun febrúar en upp úr miðjum febrúar fór verðið að hækka nokkuð skarpt og var komið í 67 dali 22. febrúar.
Verðið um þessar mundir er þó ekkert sérstaklega hátt í sögulegu samhengi, en meðalverð síðustu 10 ára er 80,4 dalir.