Ólíðandi verknaður að senda barnshafandi konu burt í óvissu og örbirgð

Agnes Sigurðardóttir, biskup yfir Íslandi. Ljósmynd: kirkjan.is

Biskup Íslands hefur óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra til að ræða stöðu hælisleitenda í ljósi þess að barnshafandi konu var vísað úr landi s.l. nótt með tveggja ára barni sínu.

„Það er ólíðandi verknaður að senda barnshafandi konu burt í óvissu og örbyrgð. Það er mannréttindabrot og gengur þvert á skilyrðilausa kærleiksskyldu kristinna manna,“ segir Agnes Sigurðardóttir biskup í yfirlýsingu.

Biskups Íslands hefur óskað eftir því að prestur innflytjenda sr. Toshiki Toma, ásamt sr. Ásu Laufey Sæmundsdóttir og sr. Evu Björk Valdimarsdóttur, sem séð hafa um þjónustu við hælisleitendur, fylgi málinu eftir.