
Utanríkismálanefnd afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þriðja orkupakkann í morgun með atkvæðum allra nefndarmanna nema Miðflokksins og er stefnt á að taka málið til annarrar umræðu í þinginu á morgun.
Í yfirlýsingu sem Miðflokkurinn hefur sent frá sér, segir:
„Á fundi utanríkismálanefndar í dag var tekin ákvörðun um að taka málið um 3. orkupakkann úr nefndinni, hafna frekari gestakomum og taka málið til umræðu á morgun þriðjudag. Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum nema einu, atkvæði Miðflokksins. Aðeins er gefinn einn dagur til þess að leggja fram minnihlutaálit. Það er er óeðlilega skammur tími í jafn stóru máli.
Það er skoðun þingmanna Miðflokksins að málsmeðferðin sé með öllu óboðleg. Hér er um að ræða afar þýðingarmikið mál sem varðar mikla þjóðarhagsmuni. Nefnd er tekur slíkt mál til umfjöllunar ber að kynna sér sjónarmið allra þeirra er þekkingu hafa á slíkum málum, annað er Alþingi lítt til sóma.
Það má ljóst vera að ætlunin er að þröngva málinu í gegnum Alþingi á sem skemmstum tíma þrátt fyrir að málið valdi mörgum áhyggjum og mikil andstaða sé við það meðal þjóðarinnar.“