Óvissustig vegna landriss og kvikusöfnunar við fjallið Þorbjörn

Fjallið Þorbjörn stendur á milli Grindavíkur og Svartsengis. Mynd/Grindavíkurbær

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi. Frá þessu segir í tilkynningu á vef Almannavarna ríkisins nú áðan.

Talið er að landrisið gæti stafað af kvikusöfnun við eða undir fjallinu, sem stundum er undanfari eldgosa. Í miklu návígi við fjallið Þorbjörn er Grindavíkurbær, Bláa lónið og HS orka í Svartsengi. Keflavíkurflugvöllur er skammt frá, en skemmst er að minnast áhrifa gossins í Eyjafjallajökli, sem er talsvert lengra í burtu, á millilandaflug.

Undanfarna daga hefur landris og aukin jarðskjálftavirkni mælst á Reykjanesi og telja jarðvísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar HÍ mögulegt að um sé að ræða kvikusöfnun vestan við Þorbjörn, þótt ekki sé útilokað að aðrar ástæður geti verið fyrir þessari virkni. 

Samhliða hefur Veðurstofa Íslands fært litakóða fyrir flug á gult. 

Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu Grindavík kl. 16 á morgun, mánudag 27. janúar, þar sem vísindamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun munu gera grein fyrir stöðunni auk fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.  

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofan og þær stofnanir sem málið varða hafa aukið samráð og fylgjast með stöðunni.  

Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.