Ráðherra boðar flóttamannabúðir á Schengen fundi og forgangsröðun brottvísana

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra ítrekaði mikilvægi þess að forgangsraða brottvísunum þeirra einstaklinga af Schengensvæðinu sem taldir eru vera ógn við öryggi almennings og upplýsti um að að íslensk stjórnvöld myndu tryggja að sú framkvæmd yrði viðhöfð. Í þessum tilgangi upplýsti ráðherra einnig um frumvarp sem hún hyggst leggja fyrir þingið fljótlega eftir áramót um lokað búsetuúrræði, eða það sem í daglegu tali er kallað flóttamannabúðir fyrir hælisleitendur. Ráðherra ítrekaði einnig mikilvægi Schengen samstarfsins fyrir Ísland og þakkaði Evrópsku landamæra-og strandgæslustofnuninni Frontex fyrir gott samstarf. 

Þetta kom fram á reglulegum fundi ráðherra dóms- og innanríkismála innan hins hefðbundna Schengen-ráðs þann 5. desember sl. í Brussel. Guðrún Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra, sótti fundinn fyrir Íslands hönd. Á fundinum var farið yfir heildarstöðuna á Schengen-svæðinu, þ.e. innra öryggi svæðisins og stöðuna á ytri landamærum. Finnland upplýsti um stöðuna á ytri landamærum en nýverið tóku Finnar ákvörðun um að loka öllum landamærastöðvum sem liggja að Rússlandi.

Á fundinum var einnig lögð sérstök áhersla á mikilvægi skilvirkra brottvísana einstaklinga í ólögmætri dvöl.  Þá var stækkun Schengen-svæðisins einnig rædd en Búlgaría og Rúmenía hafa enn ekki fengið aðgang að svæðinu þrátt fyrir að hafa uppfyllt öll skilyrði síðan 2011. Ylva Johansson, framkvæmdastjóri innanríkismála ESB hvatti aðildarríkin til þess að samþykkja stækkun svæðisins sem fyrst og þá helst fyrir áramót. Yfir hádegisverði ræddu ráðherrar stöðuna í Miðausturlöndum og áhrif árásastríðs Rússlands í Úkraínu. Ráðherrar voru einnig upplýstir um stöðuna á þríhliða viðræðum við Evrópuþingið um hælispakka ESB en þingið og ráðherraráðið hefur aldrei verið eins nálægt því að ná samkomulagi, skv. upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu.