Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur. Hafa drög samningsins nú verið birt.
Með þessu samningi EFTA-ríkjanna innan EES og Bretlands eru íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru í Bretlandi og Bretum búsettum á Íslandi fyrir útgöngudag tryggð réttindi til áframhaldandi búsetu gangi Bretland úr ESB án samnings.
Undir lok nýliðins árs lauk samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES við Bretland vegna útgönguskilmála Bretlands úr ESB og Evrópska efnahagssvæðinu. Sá samningur verður eingöngu undirritaður ef útgöngusamningurinn milli Bretlands og ESB verður samþykktur og tekur gildi, að því er kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Nú hafa því verið tryggð áframhaldandi búseturéttindi óháð niðurstöðu viðræðna milli Bretlands og ESB.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fagnaði því að samkomulag væri í höfn.
„Íslensk stjórnvöld hafa undirbúið sig fyrir mismunandi sviðsmyndir meðal annars þann möguleika að Bretland gangi úr ESB án samnings. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem tryggir réttindi íslenskra og breskra ríkisborgara óháð því hvort Bretland og ESB ná niðurstöðu í sínum viðræðum,“ segir hann.
Nánari upplýsingar er að finna á síðu um borgararéttindi vegna Brexit.
Bresk stjórnvöld hafa birt tilkynningu um málið, auk nánari skýringa á samningsdrögunum.