„Það hefur ekki farið fram hjá fólki í fjölmiðlum á undanförnum dögum að það gengur hægt að semja við þessa ríkisstjórn um lok þings, enda kemur hún algerlega tómhent til þeirra viðræðna,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Viðreisnar í umræðum um störf þingsins við upphaf þingfundar í morgun.
„Þingflokksformenn sitja umboðslausir á fundum og hafa ekkert fram að færa. Formenn stjórnarflokkanna hafa heldur ekkert fram að færa til lausnar. Það kann að vera að ríkisstjórnin sé einfaldlega ekki tilbúin til þingloka. Hún er ekki tilbúin með þau mál sem hún þarf að klára hér degi áður en þing hefði átt að fara heim og þiggur þess vegna með þökkum þær tafir sem hafa orðið á þingstörfunum hingað til. Ríkisstjórnin er nefnilega ekki búin að vinna heimavinnuna,“ bætti Þorsteinn við.
Hann benti á, að samkvæmt starfsáætlun Alþingis ætti þingstörfum að ljúka á morgun. Af augljósum ástæðum hafi störfin dregist á langinn.
„En það sem mér finnst hins vegar öllu áhugaverðara í þeirri stöðu sem uppi er núna, þegar þingi hefði átt að ljúka á morgun, er að fjármálastefna ríkisstjórnarinnar liggur ekki fyrir. Breytingartillögur ríkisstjórnarinnar á eigin fjármálastefnu degi áður en þingið hefði átt að fara heim eru ekki tiltækar, hvað þá að tími hafi gefist til að gaumgæfa þær eða ræða,“ sagði Þorsteinn ennfremur.