Ríkisstjórnin réttir Icelandair hjálparhönd: Lánalína eða ríkisábyrgð

Stórtíðindi hafa orðið í íslenskri ferðaþjónustu í kvöld með þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að hún sé tilbúin að ræða neyðarlán til Icelandair eða ríkisábyrgð á láni.

Svofelld yfirlýsing hefur verið birt á vef stjórnarráðsins:

„Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvaldaverið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár. 

Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga fjögurra ráðherra um að ríkið væri tilbúið að eiga samtal um mögulega veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til félagsins.

Er aðkoma stjórnvalda háð því að fullnægjandi árangur náist í fjárhagslegri endurskipulagningu félagins í samræmi við þær áætlanir sem kynntar hafa verið, þ.m.t. að afla nýs hlutafjár, en fram er komið að félagið vinnur nú að framkvæmd hlutafjárútboðs fyrir lok næsta mánaðar.

Samhliða þessari vinnu halda viðræður áfram um nánari forsendur fyrir mögulegri fyrirgreiðslu og skilmálum fyrir henni af hálfu stjórnvalda.

Gangi áform félagsins eftir verður þingmál um fyrirgreiðslu ríkisins lagt fyrir Alþingi til samþykktar.“