„Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru útgjöld til flestra málaflokka að aukast töluvert. Samtals um 33,9 milljarða frá 2018 (fyrir utan launahækkanir og lífeyrisskuldbindingar). Það er 4,8% hækkun útgjalda og langmest fer til heilbrigðis- og velferðarmála.“
Þetta skrifar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins í nýrri færslu á fésbók, þar sem hann bregst við gagnrýni á breytingatillögur við fjárlagafrumvarpið sem ræddar eru í þinginu í dag.
Fjármálaráðherra bendir á ætlunin sé að skila 29 milljarða afgangi á næsta ári. Það sé ábyrgt og ríkið leggi þannig sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgunni og áframhaldandi uppgreiðslu skulda.
Skýtur föstum skotum að Samfylkingunni
Og Bjarni skýtur föstum skotum að Samfylkingunni í pistli sínum:
„En Samfylkingin telur ekki nóg gert og vill bæta við 24 milljörðum í útgjöld í viðbót. Það myndi þýða 8% aukningu útgjaldanna! Um leið segja þau að hagspár séu fullbjartsýnar. Þetta sé allt að fara til verri vegar, þau tala niður gjaldmiðilinn og verðbólguna upp.
Afkomunni á svo að redda með auknum sköttum – nema hvað. Það dugar ekki að tekjurnar eru þegar að vaxa um 43 milljarða, þrátt fyrir lækkun tryggingagjalds og hærri persónuafslátt, því hér er hagvöxtur.
Þrátt fyrir að hagkerfið sé að kólna vilja þau leggja 26 milljarða á í nýjum sköttum og gjöldum, m.a. með því að endurtaka hinn misheppnaða sykurskatt sem mun hækka matvöru og verðlag án þess að hafa áhrif á neysluvenjur. Þau vilja líka halda í bankaskattinn upp á 7 milljarða en hann veldur hærra vaxtastigi í landinu (og við ætlum þess vegna að afnema hann í skrefum). Með bankaskattinum vilja þau 33 milljarða hærri skatta.
Í heildina myndu þeirra tillögur þýða að skattar og gjöld hækkuðu um 4,7%,“ segir hann.
Og Bjarni Benediktsson segir að skilaboð Samfylkingarinnar séu þessi:
„Það þarf miklu meiri útgjöld. Og miklu hærri skatta. Að lokum: útlitið er ekki bjart.”