Samherji ætlar að innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi

Ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin á grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu.

„Samherji mun þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti,“ segir Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja í tilkynningu á vef fyrirtækisins í dag.

Ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin á grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Nýja kerfið verður hluti af framtíðarstjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfyrirtækja.

Stefnt er að því að ljúka innleiðingu kerfisins síðar á þessu ári.

Samherji er um þessar mundir að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Hins vegar er ljóst að það mun taka einhvern tíma. Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur.