Samtök iðnaðarins í aldarfjórðung

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra.

Íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð er yfirskrift Iðnþings, sem haldið verður í Hörpu nú á fimmtudag.

Á Iðnþingi 2019 verður þess minnst að 25 ár eru liðin frá stofnun Samtaka iðnaðarins. Íslenskur iðnaður hefur verið órjúfanlegur hluti af sögu Íslands og verður horft á það sem áunnist hefur í áranna rás, varpað verður upp myndum af stöðu dagsins í dag, auk þess sem rýnt verður í framtíðina sem er rétt handan við hornið.

Á þinginu flytja ávörp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Að loknum ávörpum og innslögum forkólfa úr íslenskum iðnaði verður efnt til umræðna um helstu viðfangsefni iðnaðar með þátttöku formanns SI, ráðherra og Árna Oddi Þórðarsyni, forstjóra Marel.

Umræðum stýrir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, lýkur síðan þinginu með samantekt.