Sandra Líf fannst látin

Sandra Líf Þórarinsdóttir Long, sem leitað hefur verið að frá því aðfaranótt laugardags, fannst látin á þriðja tímanum í dag í fjörunni á Álftanesi, ekki langt frá upphafsstað leitarinnar um helgina.

Þetta kemur fram í stuttri yfirlýsingu frá lögreglunni.

Ekki er talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Sandra Líf var 26 ára og búsett í Hafnarfirði.

Fjölskylda hennar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leitina.