Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, leiðir framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) fyrir komandi þingkosningar sem fara fram þann 25. september næstkomandi. Athygli vekja hin óvæntu tíðindi að fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson er í 2. sæti listans og Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur skipar 3. sætið.
Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi er í 4. sæti listans og Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi skipar 5. sæti. Þá er Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur í 6. sæti listans.
„Ég er gríðarlega stolt af þessum öfluga lista hjá okkur hér í Kraganum og er afar spennt fyrir næstu mánuðum í kosningabáráttu með þessum fjölbreytta og skemmtilega hópi. Komandi kosningar munu snúast um það hvernig samfélag við viljum byggja hér til framtíðar og það hvort almannahagsmunir ráði þar för eða sérhagsmunir. Áherslur okkar í Viðreisn eru alveg skýrar. Við setjum almannahagsmuni framar sérhagsmunum með frjálslyndi og jafnrétti að leiðarljósi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín í tilkynningu frá flokknum.
Sigmar Guðmundsson er þekktur fyrir störf sín í fjölmiðlum undanfarin þrjátíu ár en stígur nú inn á hið pólitíska svið í fyrsta sinn. Hann fer beint í annað sætið á lista flokksins í Kraganum, en Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar ætlaði sér það, eins og kunnugt er. Niðurstaða uppstillinganefndar var að bjóða honum neðsta sætið, svokallað heiðurssæti, en það afþakkaði hann. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, skipar það sæti á listanum.
„Ég hef unnið í fjölmiðlum í nærri 30 ár og fjallað mikið um pólitík í mínum störfum. Það er því mjög spennandi fyrir mig að söðla um og vera virkur þátttakandi í stjórnmálum þótt það verði vissulega erfitt að kveðja minn gamla vinnustað sem hefur gefið mér svo mikið. Mínar skoðanir fara vel saman við stefnu Viðreisnar, þar sem frjálslyndi er lykilhugtak, auk þess sem ég hef mikið álit á fólkinu sem hefur borið uppi starfið þar. Flokkurinn vill stokka upp gömul kerfi og setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum og ég hlakka til að leggja mín lóð á vogaskálarnar í þeirri baráttu,“ segir Sigmar.
Framboðslisti Viðreisnar í Suðvesturkördæmi:
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Hafnarfjörður
- Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður. Garðabær
- Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Mosfellsbær
- Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi. Garðabær
- Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi. Hafnarfjörður
- Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur. Garðabær
- Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður. Kópavogur
- Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi. Hafnarfjörður
- Sigrún Jónsdóttir flugfreyja. Hafnarfjörður
- Guðlaugur Kristmundsson þjálfari. Garðabær
- Kristín Pétursdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hafnarfjörður
- Ívar Lilliendahl læknir. Mosfellsbær
- Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir sölufulltrúi. Hafnarfjörður
- Hermundur Sigurðsson raffræðingur. Hafnarfjörður
- Soumia I Georgsdóttir framkvæmdastjóri. Kópavogur
- Þórólfur Heiðar Þorsteinsson lögmaður. Kópavogur
- Sigríður Sía Þórðardóttir forstöðumaður. Kópavogur
- Jón Gunnarsson háskólanemi. Garðabær
- Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta. Hafnarfjörður
- Páll Árni Jónsson stjórnarformaður. Seltjarnarnes
- Steinunn Ása Þorvaldsdóttir dagskrárgerðarkona. Reykjavík
- Magnús Ingibergsson húsasmíðameistari. Mosfellsbær
- Þórey S Þórisdóttir doktorsnemi. Hafnarfjörður
- Eyþór Eðvarðsson ráðgjafi. Álftanes
- Theodóra S Þorsteinsdóttir, fyrrverandi alþingismaður. Kópavogur
- Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra. Reykjavík