Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, gekkst undir aðgerð vegna botnlangakasts á dögunum, en er nú kominn heim.
„Fyrir nokkrum dögum kynntist ég stöðu heilbrigðiskerfisins af eigin raun, kostum þess og göllum. Kostirnir liggja umfram allt í því frábæra fólki sem starfar í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þetta fólk á hins vegar skilið að starfa við miklu betri aðstöðu en raun ber vitni,“ segir hann í færslu á fésbókinni.
„Eftir biðina á bráðamóttökunni og svo tilfærslur í sjúkrarúmi þar sem ég lá um tíma á ganginum og svo í lítilli kompu (sem var mjög fínt og ég var þakklátur fyrir) var ég sendur í aðgerð vegna botnlangakasts.
Aðgerðin gekk vel og ég er kominn heim en mér er hugsað til þess góða og færa fólks sem bjargaði mér og þarf áfram að vinna við slíkar aðstæður. Sérstaklega núna þegar ljóst er að áhrif kórónaveirunnar eiga eftir að skapa mikið álag fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Þörfin fyrir róttækar aðgerðir og nýtt skipulag í heilbrigðismálum var orðin augljós en nú þarf neyðaraðgerðir,“ bætir hann við.