Síldarvinnslan á Neskaupsstað hefur sent frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla í kjölfar fréttar sem birtist í Fréttablaðinu í dag, þar sem segir að Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hafi óskað eftir leiðbeiningum frá Samherja hinn 30. apríl árið 2014 varðandi það hvernig blekkja mætti Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og kvóta.
„Þessi frétt er algjörlega röng og í reyndinni merkilegt hvernig blaðamaður getur lesið þetta út úr þeim tölvupósti sem vitnað er til,“ segir í yfirlýsingunni.
„Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Grænlandi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik austurströnd Grænlands,“ útskýrir Gunnþór í tölvuskeyti til Aðalsteins Helgasonar, Jóhannesar Stefánssonar og þriðja manns hjá Samherja, að því er Fréttablaðið greindi frá.
Í fréttinni segir ennfremur:
„Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru einhverjir heimamenn í Grænlandi með einhverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum með því að þykjast vera fara byggja upp á Austur Grænlandi,“ undirstrikar Gunnþór í pósti sínum. „Eigið þið ekki tilbúna einhverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?“
Umræddur póstur Gunnþórs var sendur 30. apríl 2014 og er hluti skjala sem Wikileaks hefur birt. Pósturinn ber yfirskriftina: Að nema nýjar lendur.
Í yfirlýsingu Síldarvinnslunnar segir ennfremur:
„Síldarvinnslan hf. hefur átt í farsælu samstarfi við Grænlendinga frá árinu 2003 við rekstur útgerðarfyrirtækis. Árið 2012 festi stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands, Polar Seafood, kaup á meirihlutanum í útgerðarfyrirtækinu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síldarvinnslan á þriðjungs hlut í því.
„Sorglegt dæmi um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla“
Stjórn Polar Seafood hefur alla tíð sinnt öllum samskiptum fyrirtækisins við grænlensk stjórnvöld. Stjórnarformaður Polar Seafood er Henrik Leth en hann hefur lengi verið einn af helstu forystumönnum grænlensks sjávarútvegs.
Árið 2014 hafði Henrik Leth samband við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Grænlandi væri í umræðunni að einhverjir áformuðu að koma upp fiskimjöls- og uppsjávarvinnslu í Ammasalik á austurströnd landsins. Taldi Henrik þessi áform mjög óraunhæf og áleit að þau væru sett fram í þeim tilgangi að ná kvóta hjá grænlenskum stjórnvöldum. Til þess að fá nánari upplýsingar um tæknileg málefni og kostnað við uppbyggingu eins og þessa leitaði hann til Gunnþórs Ingvasonar.
Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætlanir um slíka uppbyggingu í Marokkó og einfaldast væri að skoða þær. Sendi hann Samherjamönnum tölvupóst þar sem hann bað um að fá þessar upplýsingar þó þær ættu við um uppbyggingu í Afríku. Þar með var málinu lokið að hans hálfu.
Henrik Leth segir eftirfarandi um þetta: „Ég leitaði til Gunnþórs um upplýsingar einfaldlega vegna þess að Síldarvinnslan hefur mikla reynslu og þekkingu á uppbyggingu og rekstri vinnslufyrirtækja. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona neikvæða frétt um greiðvikni hans í minn garð. Þetta er sorglegt dæmi um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla.“
Af framansögðu má ljóst vera að orð Gunnþórs Ingvasonar í tölvupóstinum voru slitin úr samhengi í umræddri frétt. Síldarvinnslan harmar þann villandi og meiðandi málflutning sem birtist í fréttinni.“