Skattbyrði lægstu launa lækkuð um 2 prósentustig

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Skattbyrði lágtekjufólks lækkar um 2 prósentustig verði fyrirætlanir stjórnvalda um breytingar á skattkerfinu samþykktar. Breytingarnar, sem kynntar voru fyrir aðilum vinnumarkaðarins í dag og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fjölmiðlum síðdegis, eru í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar 2018. Þær munu sérstaklega bæta stöðu kvenna, fólks á aldrinum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borgara, þeim sem ekki eiga húsnæði og þeim sem þiggja húsnæðisstuðning, að því er fjármálaráðuneytið segir í kynningu.

Bætt verður við nýju neðsta skattþrepi og fjárhæðum til lækkunar skatta beint til lægri millitekju- og lágtekjuhópa. Gert er ráð fyrir að tekjuáhrif skattkerfisbreytinganna nemi um 14,7 milljörðum króna. Hækkun barnabóta 2019 nemur 1,6 ma.kr. og hækkun persónuafsláttar umfram verðlag 1,7 ma.kr. Alls nema því tillögur stjórnvalda í tekjuskatti og barnabótum 18. ma.kr.

Fjármálaráðherra sagði á fundinum, að stjórnvöld hafi stefnt að því að minnka álögur og líta til jafnaðar. Starfshópur hafi unnið tillögur að breytingum eftir þessum leiðarstefjum. Niðurstaðan af vinnu hópsins, sem kynna mun skýrslu sína í lok vikunnar, er að æskilegt sé að jöfnunin grundvallist meira á þrepum kerfisins en persónuafslætti/skattleysismörkum. Því sé mælt með nýju þrepi sem lækkar skatthlutfall sérstaklega fyrir þá sem eru í lægstu tekjutíundunum. Fyrir þá sem eru með mánaðalaun upp á 325 þúsund krónur þýðir þetta aukningu ráðstöfunartekna um 81 þúsund krónur.

Gert er ráð fyrir að breytingarnar komi til framkvæmda í skrefum á árunum 2020-2022.

Tillögur starfshópsins að breyttum skattþrepum, skatthlutfalli, persónuafslætti og skattleysismörkum:

Þrep 1. Skatthlutfall 32,94% þ.a. tekjuskattur 18,5% og meðalútsvar 14,44%.
Þrep 2. Skatthlutfall 36,94% þ.a. tekjuskattur 22,5% og meðalútsvar 14,44%.
Þrep 3. Skatthlutfall 46,24% þ.a. tekjuskattur 31,8% og meðalútsvar 14,44%.

Persónuafsláttur: 56.477 kr. á mánuði eða 677.358 kr. á ári.

Skattleysismörk: 159.174* kr. á mánuði m.v. frádrátt 4% lífeyrisiðgjalda