Bólusettir farþegar með tengsl við Ísland þurfa frá og með 16. ágúst að fara í sýnatöku innan 48 klukkustunda frá komu til landsins. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Einstaklingar með tengsl við Ísland teljast:
- Íslenskir ríkisborgarar
- Einstaklingar búsettir á Íslandi
- Einstaklingar með atvinnuleyfi á Íslandi
- Umsækjendur um atvinnuleyfi eða alþjóðlega vernd á Íslandi
Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneyti, forsætisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti, að umræddir farþegar muni ekki þurfa að sæta sóttkví þar til niðurstaða úr sýnatöku liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að fólk fari annað hvort í hraðpróf (antigen) eða PCR-próf, en nánara fyrirkomulag verður unnið í samráði við sóttvarnalækni. Þá verði hægt að fara í sýnatöku annað hvort á landamærum eða á sýnatökustöð innan tímamarkanna og verður sýnatakan gjaldfrjáls. Heimilt verður að sekta þá einstaklinga sem ekki fara í sýnatöku innan tiltekins tíma.
„Samkvæmt upplýsingum frá embætti sóttvarnalæknis hafa um 90% þeirra einstaklinga sem greinst hafa með COVID-19 frá 1. júlí íslenska kennitölu. Mikilvægt er að tryggja varnir gegn nýjum afbrigðum veirunnar og því er þessi ákvörðun tekin. Áfram verður gerð krafa um framvísun neikvæðs COVID-prófs á landamærum en tvöföld sýnataka með nokkurra daga millibili hefur reynst vel í faraldrinum.
Unnið verður að nánari útfærslu framkvæmdarinnar næstu daga og m.a. verður óskað eftir mati sóttvarnalæknis á þeim hópi sem aðgerðirnar ættu að takmarkast við,“ segir þar ennfremur.