Alþýðusambandið hefur hleypt af stokkunum átaksverkefni í verðlagsmálum. Markmið verkefnisins er að auka upplýsingagjöf til neytenda og skapa virkt aðhald með verðlagi á neytendamarkaði til að styðja við lækkun verðbólgu í aðdraganda kjarasamninga.
Í tilefni átaksins hefur ASÍ gefið út nýjan verðskanna í formi smáforrits, sem gerir neytendum kleift að skanna strikamerki og fá upplýsingar um verð vöru í ólíkum smávöruverslunum. Smáforritið Prís er nú aðgengilegt fyrir öll snjalltæki, bæði Android og iOS. Þá mun verðlagseftirlit ASÍ safna tíðum og víðtækum verðupplýsingum í verslunum og auka upplýsingagjöf um verðlag og verðþróun til neytenda.
Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í gær að styrkja verðlagseftirlit ASÍ með 15 m. kr. vegna verkefnisins. Menningar- og viðskiptaráðherra gerir samning um styrkveitinguna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.