Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri hafa komist að samkomulagi um starfslok Guðmundar og lætur hann af störfum nú þegar.
Frá þessu er greint á vef Ísafjarðarbæjar. Ástæða starfsloka er þar sögð vera ólík sýn á verkefni á vettvangi sveitarfélagsins. Telji aðilar það sveitarfélaginu fyrir bestu að leiðir skilji.
Heimildir Viljans herma að bæjarbúar séu mjög undrandi á þessum tíðindum, þar sem Guðmundur njóti mikilla vinsælda. Hann hafi til að mynda sýnt mikla leiðtogahæfileika undanfarna daga í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Flateyri.
„Það mun skýrast á allra næstu dögum hvernig ráðningu á næsta bæjarstjóra verður hagað. Þangað til mun bæjarritari, sem er staðgengill bæjarstjóra, gegna starfinu. Meirihlutinn f.h. bæjarstjórnar, óskar Guðmundi velfarnaðar og þakkar honum fyrir samstarfið.
Guðmundur vill koma á framfæri einlægum þökkum til íbúa Ísafjarðarbæjar fyrir frábærar viðtökur og ánægjulegt samstarf. Hann segir það heiður að hafa fengið tækifæri til að vinna að mikilvægum hagsmunamálum Vestfirðinga með kraftmiklu starfsfólki sveitarfélagsins.
Það eru spennandi og krefjandi verkefni framundan í Ísafjarðarbæ og rík ástæða til að horfa björtum augum til framtíðar,“ segir í yfirlýsingu sem þeir skrifa báðir undir, Kristján Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og Guðmundur Gunnarsson.