Stefnuræða forsætisráðherra verður á miðvikudag

Starfsáætlun fyrir 150. löggjafarþing hefur verið samþykkt af forsætisnefnd.

Þingsetning verður þriðjudaginn 10. september 2019 og stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana að kvöldi miðvikudagsins 11. september.

Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp 2020 fer fram fimmtudaginn 12. september og föstudaginn 13. september. Stefnt er að 2. umræðu þriðjudaginn 12. nóvember og 3. umræðu þriðjudaginn 26. nóvember.