Það er því leiðinlega málvenja í okkar samfélagi að eyrnamerkja alla þá sem koma að faglegri þjónustu samtalsmeðferðar sem sálfræðinga eða þeir séu að veita sálfræðiþjónustu. Samtalsmeðferð er ekki eingöngu byggð á sálfræðiþjónustu, þar koma aðrar fagstéttir ekki síður að eins og til dæmis klínískir félagsráðgjafar.
Þetta segir Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi MA hjá Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð og einhver þekktasti ráðgjafi í þessum efnum hér á landi.
Hann bendir á að hér á landi fái ákveðnar fagstéttir opinbera viðurkenningu Landlæknis, svokölluð starfsleyfi, til að sinna samtalsmeðferð.
„Þeirra á meðal eru félagsráðgjafar og sálfræðingar. Sú málfarsvenja að kalla alla þessa þjónustu sálfræðiþjónustu er því mjög villandi. Það er eins og að kalla alla læknastéttina eins og hún leggur sig öldrunarlækna. Þá myndum við segja, ég þarf að fara með sex ára son minn til öldrunarlæknis og athuga barna exemið sem hann er með,“ segir hann.
Ekki eingöngu sálfræðiþjónusta
Theodór bendir á að þessa dagana hafi Alþingi til meðferðar frumvarp um greiðsluþátttöku ríkisins á „sálfræðiþjónustu“.
„Hér kristallast málvenjan með mjög skýrum hætti. Það er skýr krafa félagsráðgjafa að þessu orðalagi verði breytt þannig að um verði að ræða greiðsluþátttöku ríkisins á „samtalsmeðferð sem veitt er af viðurkenndum fagaðilum með starfsréttindi frá Landlækni“. Verði það ekki gert má líkja því við að ríkið muni aðeins niðurgreiða þjónustu háls- nef- og eyrnalækna en ekki almennra heimilislækna. Það sjá allir að það gengur aldrei upp.
Ég hef undanfarin ár starfað við samtalsmeðferð sem klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Ég hef ekki tölu á hversu oft ég hef á þeim árum verið kallaður sálfræðingur. Ég ber mikla virðingu fyrir sálfræðingum og tel þá nauðsynlega fagstétt í heilbrigðismálum. Ég er bara ekki sálfræðingur, ég er klínískur félagsráðgjafi og þætti því í raun betra ef einhver vill kenna mig við fagstétt að það væri þá mín eigin stétt.
Ef ég væri háls- nef- og eyrnalæknir myndi ég ekki vilja vera kallaður gigtarlæknir eða öldrunarlæknir, ég myndi bara vilja vera kallaður háls- nef- og eyrnalæknir. Sú afstaða mín yrði seint til vandræða og auðskilin af öllum.
Hafa fimm ára nám að baki
Klínískir félagsráðgjafar hafa að baki fimm ára háskólanám í félagsvísindum. Þrjú ár í grunnnámi og síðan tveggja ára mastersnám í klínískri félagsráðgjöf, samtals 300 ECTS einingar. Kennslan er í höndum þaulreyndra félagsráðgjafa sem hafa áratuga reynslu í sínu fagi og öll nálgun á viðfagsefninu er mjög dýnamísk. Fagþekking þeirra er því mjög víðáttumikil þegar kemur að líðan einstaklinga og samspili þeirra við umhverfi sitt,“ segir Theodór Francis ennfremur og kveðst að lokum vonast til þess að unnt sé að leiðrétta þessa leiðu málfarsvenju þannig að engin börn þurfi að fara til öldrunarlæknis til að fá rör í eyrun.