Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins og fyrrverandi formaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýnir útþenslu ríkisins og lausatök í ríkisfjármálunum, nú þegar útlit er fyrir að ríkissjóður verði rekinn með halla á næsta ári.
Vigdís rifjar upp á fésbókinni að árið 2013 hafi hún verið formaður fjárlaganefndar þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson varð forsætisráðherra.
„Þetta var fyrsta árið frá hruni sem ríkissjóður var rekinn með afgangi og kostaði það mikil átök við m.a. forstöðumenn ríkisstofnana eins og frægt varð.
Ekkert var gefið eftir — nú 6 árum síðar eru boðuð fjáraukalög sem setja ríkissjóð í halla og fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020 er með halla – sem verður enn meiri halli í fjáraukalögum 2020 ef ég þekki kerfið rétt,“ segir Vigdís.
„Það tók 7 ár að glutra ríkisrekstrinum niður — enda hvergi að finna alvöru hagræðingu eða minnkun á bákninu. Það skiptir svo sannarlega máli hverjir veljast til forystu í samfélaginu,“ bætir Vigdís við.