Þingflokkurinn fundaði í Teigsskógi

Sjálfstæðisflokkurinn hélt sérstakan þingflokksfund í Teigsskógi við Þorskafjörð um helgina og samþykkti að Haraldur Benediktsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis legði fram frumvarp til laga um lagningu láglendisvegar í gegnum Teigsskóg.

Við upphaf þingfundar í dag óskaði Haraldur eftir stuðningi þingmanna úr öllum flokkum við frumvarpið, enda ættu Vestfirðingar það skilið að hoggið yrði á þann hnút sem vegamál á svæðinu hafa verið í um árabil.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tók síðustu helgi í að ferðast um norðanverða og sunnanverða Vestfirði og hélt fundi og heimsótti Súðavík, Bolungarvík, Ísafjörð, Flateyri, Suðureyri, Dýrafjarðargöng,  Bíldudal, Tálknafjörð og Patreksfjörð.

Á öllum fundunum var mikill samhljómur um veglagningu í gegnum Teigsskóg í Þorskafirði, að því er segir á heimasíðu flokksins.

Þingflokksfundurinn var síðasti fundurinn sem þingflokkurinn hélt á ferð sinni um Vestfirði.