Þjóðin er slegin óhug eftir að fregnir bárust í kvöld af alvarlegu flugslysi við Fljótshlíð, þar sem allir um borð — fimm talsins — voru alvarlega slasaðir.
Uppfært kl 02.37
Þrír létust og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús eftir að einkaflugvél skall til jarðar við Múlakot í Fljótshlíð um kl. 20.30 í kvöld. Líðan þeirra slösuðu er stöðug.
Rannsókn á tildrögum slyssins er í gangi og ekki verður unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Laust eftir 20:30 í gærkvöldi barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð. Eldur var þá laus í flugvélinni, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.
Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn.
Alls voru fimm aðilar í flugvélinni og eru allir alvarlega slasaðir.
Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt hefur viðbragsteymi Rauðakross Íslands verið sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.