Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tímabundið í fjóra daga frá 18. – 21. september. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að á þremur sólarhringum þar sem greindust alls 38 smit hafi a.m.k. fjórðungur þeirra tengst heimsókn á ákveðnar krár og skemmtistaði í Reykjavík fyrir rúmri viku. Bregðast þurfi við sem fyrst með markvissum aðgerðum til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur með tilheyrandi afleiðingum, segir í minnisblaðinu.
Í morgun var tilkynnt um 21 nýsmit sl sólarhring. Þar af voru 14 þeirra utan sóttkvíar, sem bendir til nokkurrar útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. Virðist því orðið óhætt að flokka þróunina nú sem nýja bylgju COVID-19 hér á landi, þá þriðju frá því faraldurinn tók hér land í febrúar sl.
Lokunin tekur til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Seltjarnarnesi. Í 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 eru taldar upp og skilgreindar mismunandi tegundir veitingastaða. Í tilvikum þar sem staðir eru með rekstrarleyfi fyrir fleiri tegundum veitingastaða en krám og skemmtistöðum er áframhaldandi starfsemi heimil hvað þær tegundir varðar. Þannig geta veitingastaðir sem í rekstrarleyfi eru skráðir sem veitingahús eða kaffihús, haldið áfram starfsemi á þeim grundvelli, en kráar- og skemmtistaðastarfsemi er óheimil.