Þrjár mikilsverðar staðreyndir um orkupakkann

Dr. Ólafur Ísleifsson alþingismaður. / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Umræðurnar um orkupakkann hafa dregið fram þrjár mikilvægar staðreyndir, segir dr. Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins í færslu á fésbókinni í dag.

1. Lagalegi fyrirvarinn skiptir engu máli, hver sem hann er og hvort sem hann kemur í leitirnar eða ekki. Þjóðréttarlegt gildi hans er ekkert. Hann er róandi lyf til heimabrúks á þingmenn stjórnarflokkanna. Leiktjöld. Blekking, svo notað sé orðfæri Þorsteins Pálssonar.

2. Alþingi hefir ekkert að segja um hvort lagður er sæstrengur að landinu. Erlendir sæstrengsmenn geta knúið fram háar skaðabætur á grundvelli samningsbrota synji Orkustofnun um tengingu. Við erum þá í stöðu Mexikóa sem eiga að greiða fyrir múrinn, við borgum strenginn, a.m.k. að verulegu leyti.

3. Samþykkt orkupakkans malbikar leiðina að fullri aðild að Evrópusambandinu í boði VG, D og B. Lofsvert segir Þorsteinn Pálsson.