Þung staða á Landspítala, löng bið á bráðamóttöku

Bráðamótaka Landspitalans Fossvogi.

Landspítali vekur athygli á því í tilkynningu nú síðdegis, að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Á bráðamóttökunni er sjúklingum núna forgangsraðað eftir bráðleika og ef kostur er vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt utan opnunartíma heilsugæslu. Á tímum heimsfaraldurs COVID-19 er sérstaklega mikilvægt er að almenningur taki tillit til ofangreindra aðstæðna á bráðamóttöku, ef mögulegt er.

„Fjórða bylgja faraldurs COVID-19 er í mikilli uppsveiflu í samfélaginu og enn virðist hátindinum ekki náð. Þetta á sér stað á sama tíma og sumarleyfi starfsfólks Landspítala standa yfir. Andspænis þessari ógn þarf nú víðtækt viðbragð á Landspítala þar sem spítalinn starfar á hættustigi og mönnun mjög víða er tæp. Af því tilefni hefur forstjóri Landspítala meðal annars biðlað til starfsfólks í sumarorlofi um að huga þegar í stað að því að stytta orlof, ef nokkur kostur er.

Landspítali hefur nú starfað í eitt og hálft ár á ýmsum óvissu- og hættustigum og þurft að krefjast mikils framlags af starfsfólki, sem hefur á löngum köflum starfað undir gríðarlegu álagi við erfiðar og fordæmalausar aðstæður.

Til marks um ástandið hefur fólki í eftirliti á COVID-göngudeildinni fjölgað jafnt og þétt að undanförnu og sömuleiðis inniliggjandi sjúklingum á spítalanum. Á sama tíma er fjöldi starfsfólks í einangrun og sóttkví, sem auðveldar ekki mönnun,“ segir þar ennfremur.