Þvílík fyrirlitning sem mannlegu lífi er sýnd

Agnes Sigurðardóttir, biskup yfir Íslandi. Ljósmynd: kirkjan.is

„Oftast hefur verið litið á tilbeiðslustaði, kirkjur sem griðastaði. Staði þar sem fólk getur komið saman og tilbeðið sinn Guð án utanaðkomandi áreitis. Nú hefur verið ruðst inn í hið heilaga vé, í Kólombó, í Christchurch á Nýja-Sjálandi og á fleiri stöðum í heiminum. Það verður með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ófriðarbálið breiðist út og það verður að taka alvarlega viðvaranir sem berast um yfirvofandi hryðjuverk. Samkvæmt fréttum var það ekki gert í Kólombó,“ segir Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, í ákalli sem birtist á vef Þjóðkirkjunnar í dag.

„Að morgni páskadags bárust hræðilegar fréttir frá Kólombó höfuðborg Sri Lanka um að hryðjuverk hefðu verið framin í 3 kirkjum og á 3 hótelum í borginni. Fjöldi látinna er talinn vera 369 manns og fjöldi annarra hefur særst.

Það er væntanlega ekki tilviljun að á mesta hátíðisdegi kristinnar kirkju, þegar þess er minnst að lífið sigraði dauðann hafi samtök illvirkja látið til skarar skríða í þeim tilgangi að hefna fyrir árás á Nýja- Sjálandi fyrir stuttu. Þvílík fyrirlitning sem mannlegu lífi er sýnd. 

Fjölmiðlar hafa sýnt okkur syrgjandi ástvini, saklaust fólk, sem minna okkur á að það getur hver sem er verið á röngum stað á röngum tíma þegar grimmdarverk eru unnin. Hugur okkar leitar því til allra þeirra sem eiga um sárt að binda, heimamanna sem ferðamanna sem koma færri heim en lögðu upp í ferðalagið,“ segir biskupinn ennfremur.

Hún segir að páskarnir minni okkur á að lífið er sterkara en dauðinn. Að hið illa eigi ekki síðasta orðið og að engin ástæða sé til að leyfa því að stjórna göngu okkar á lífsveginum. 

„Ég bið presta landsins að minnast þeirra sem fórust og biðja fyrir öllum þeim fjölmörgu sem nú sakna og syrgja,“ segir biskup Íslands ennfremur.