Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir rúmenskum karlmanni, Pioaru Alexandru Ionut, sem kom til landsins fyrripart síðustu viku í sex manna hópi.
Eins og Viljinn hefur greint frá, hafa tveir úr þessum hópi greinst með COVID-19 og því er uppi grunur að það sama geti átt við um manninn sem leitað er að.
Tveir samlandar hans, sem lýst var eftir í gær, eru fundnir og eru í vörslu lögreglu. Myndir af þeim voru birtar í Viljanum í morgun, en meðfylgjandi er mynd af Ionut, sem er á þrítugsaldri.
Mennirnir áttu að vera í 14 daga sóttkví eftir komuna til landsins, en virtu þau tilmæli að engu og hluti þeirra að minnsta kosti var handtekinn fyrir helgi eftir gripdeildir á nokkrum stöðum.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Ionut, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.
Starfsmenn gististaða og hótela eru sérstaklega beðnir um að vera á varðbergi og tilkynna um Ionut hafi þeir orðið varir við ferðir hans.