Tveir formlega í framboði til forseta Íslands

Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út auglýsingu um hverjir séu í framboði til kjörs forseta Íslands 27. júní næstkomandi í samræmi við lög um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum.

Þar með er ljóst að öll skilyrði um formsatriði, meðmælendur og slíkt hafa verið uppfyllt.

Forsetaframbjóðendur eru:

  • Guðni Th. Jóhannesson
  • Guðmundur Franklín Jónsson