Utanríkisráðherra sakar Eyjuna um dylgjur

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sakar vefmiðilinn Eyjuna um dylgjur í frétt af hagsmunaskráningu hans og eignarhaldi á jörð í eigu konu hans í tengslum við umræður um þriðja orkupakkann.

Eyjan birti í dag samsæriskenningu sem hún segir að gangi nafnlaust á Netinu, þar sem bent er á að eiginkona utanríkisráðherra, Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar, eigi félagið Steinkápu ehf. Það félag eigi jörðina Hemrumörk í Skaftárhreppi, sem er stór landspilda úr stærri jörð sem kallast Hemra.

„Hemrumörk liggur upp með Tungufljóti. Hún er vestanmegin við fljótið. Hemra er austanmegin og norðar. Verði áform um Búlandsvirkjum að veruleika munu eigendur Hemrumarkar njóta góðs af og græða milljarða,“ segir ennfremur í frétt Eyjunnar.

Þess skal getið að Viljinn hafði einnig fengið umræddar upplýsingar sendar í pósti, en ritstjórn taldi eftir skoðun að ekkert tilefni væri til fréttaflutnings, þar sem fullyrðingar í honum stæðust ekki.

Hagsmunaskráning í samræmi við reglur

Guðlaugur Þór hefur brugðist við fréttinni með svofelldri yfirlýsingu:

Vegna fréttar Eyjunnar fyrr í dag, 15. apríl, um hagsmunaskráningu mína á vef Alþingis vil ég taka eftirfarandi fram:

1. Reglur forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings, sem einnig taka til ráðherra, taka ekki til eigna eða skulda maka. Þetta hefur skrifstofa Alþingis staðfest við mig. Hagsmunaskráning mín er í fullu samræmi við þessar reglur.

2. Ágústa Johnson, eiginkona mín, hefur verið í eigin atvinnurekstri í rúma þrjá áratugi eins og flestum landsmönnum ætti að vera kunnugt um. Jörðin sem um ræðir er skógræktarjörð sem tengdaforeldrar mínir hafa ræktað upp síðan 1982. Félag, sem er í eigu Ágústu, keypti jörðina árið 2015 en hún hafði verið til sölu í nokkur ár þar á undan.

3. Allt tal um að mín fjölskylda hagnist á Búlandsvirkjun, hvað þá um milljarða króna, er fjarstæðukennt. Búlandsvirkjun er ekki í orkunýtingarflokki núgildandi rammaáætlunar. Hvorki ég né fjölskylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkjun. Ef svo ólíklega færi að hún yrði að veruleika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar neikvæð. Vonandi eru allar hugmyndir um þessa virkjun út af borðinu um alla framtíð. Um það erum við fjölskyldan öll sammála.

4. Samþykkt eða höfnun þriðja orkupakkans hefur engin áhrif á hagsmuni landeigenda á hugsanlegum virkjanasvæðum enda fjallar þriðji orkupakkinn hvorki um eignarhald né nýtingu á auðlindum. Staðreyndin er enn fremur sú að með innleiðingu þriðja orkupakkans eins og lagt er til eru settar enn frekari skorður við lagningu rafmagnssæstrengs en nú eru við lýði.

5. Dylgjur sem fram koma í ofangreindri umfjöllunar Eyjunnar bera vitni um málefnafátækt þeirra sem hafa ákveðið að berjast gegn þriðju orkupakkanum með öðru en rökum. Vonandi verður hægt að ræða þetta mál með málefnalegri hætti í framtíðinni.