Verð sjávarafurða hefur hækkað töluvert á þessu ári mælt í erlendri mynt og hefur hækkunin verið töluvert umfram hækkun almenns verðlags erlendis.
Hækkunin á þriðja ársfjórðungi nam 9,3% milli ára og er það mesta hækkun á 12 mánaða grundvelli síðan á öðrum fjórðungi 2015, þegar verðið hækkaði um 13,3%.
Þetta kemur fram í nýrri hagsjá Landsbanka Íslands.
Á fyrstu þremur fjórðungum ársins var verðið að 8,2% hærra en á sama tímabili í fyrra. Til samanburðar hækkaði verðvísitala Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna á kjöti um 2,5% milli sömu tímabila.
Litið yfir lengra tímabil hefur verð íslenskra sjávarafurða hækkað meira en heimsmarkaðsverð á kjöti. Þannig nemur hækkun verðs á íslenskum sjávarafurðum um 50% frá árinu 2010 en verðhækkun á kjöti nemur á sama tímabili 20%.
Hagfræðingar Landsbankans benda þó á að útflutningur á íslenskum sjávarafurðum fari ekki allur beint til manneldis og megi þar nefna mjöl sem er m.a. notað sem fóður í fiskeldi.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Verð íslenskra sjávarafurða í sögulegu hámarki (PDF)