Verkfall samþykkt: Vandræðalega lítil þátttaka sendir skilaboð

Sólveig Anna Jónsdóttir.

„Hvernig sem á þetta er litið er samt mjög vandræðalegt að fá ekki nema um 10% þátttöku í svona netkosningu. Það sendir ekki viðsemjendunum skilaboð um að félagsmenn standi þétt að baki samningamönnunum,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, en félagsmenn Eflingar samþykktu boðun verkfalls 8. mars meðal hreingerningafólks á hótelum með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Kosningu lauk í gærkvöldi, en þátttakan var afar lítil enda þótt kosningin væri rafræn og einnig væri boðið upp á utankjörfundi í bílum Eflingar víða um borgina.

Af 862 greiddum atkvæðum voru 769 sem samþykktu boðunina, 67 greiddu atkvæði gegn og 26 tóku ekki afstöðu. Verfallsboðunin var því samþykkt með 89% atkvæða.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, segir niðurstöðuna mikinn byr undir báða vægi í komandi baráttu.

„Félagsmenn hafa talað. Ég er innilega stolt af félagsmönnum okkar sem hafa sent mjög skýr og kröftug skilaboð með atkvæðum sínum. Það var ótrúlegt að upplifa andrúmsloftið á vinnustöðunum þar sem við skipulögðum atkvæðagreiðslur.“

Verkfallsboðunin telst nú samþykkt af félagsmönnum og verður afhent SA og Ríkissáttasemjara strax eftir að skrifstofur opna í dag.

Í dag mun Efling tilkynna um víðtækari verkfallsaðgerðir sem verða samstilltar með VR og ná lengra fram í tímann.

Á kjörskrá voru 7950 einstaklingar og þátttaka var því rétt tæp 11%.