Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnaráðherra sem hann sendi henni í gær og verða ýmsar takmarkanir, sem verið hafa í gildi undanfarnar vikur og munu gilda til 4. maí nk., verða rýmkaðar eftir þann tíma.
Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi stjórnvalda og sóttvarnayfirvalda á fundi í Þjóðmenningarhúsinu nú í hádeginu.
Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.
Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.
Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.
Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta opnað á ný en halda skal tveggja metra fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.
Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.
Þá verður skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
- Ekki fleiri en 50 einstaklingar saman í hóp.
- Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.
Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
- Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
- Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
- Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.
Nokkur atriði sem haldast óbreytt:
- Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
- Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
- Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
- Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
- Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.