Við höfum einstakt tækifæri, en eina leiðin er órjúfanleg sátt og samstaða

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að almenningur í landinu standi gegnum stéttarfélögin frammi fyrir einstöku tækifæri. Tækifæri sem muni ekki koma aftur næstu árin í það minnsta.

„Tækifæri til að standa saman um brýnasta hagsmunamál almennings og heimilanna. Við getum orðið kynslóðin sem leysti þjóðina úr viðjum okurvaxta og verðtryggingar. Kynslóðin sem hafnaði einkavinavæðingu ríkisbankanna öðru sinni. Kynslóðin sem með órjúfanlegri samstöðu sinni þrýsti á að Landsbankinn var gerður að samfélagsbanka, staðsettur á öðrum stað en í 9 milljarða glerhöll á dýrasta byggingareit landsins. Kynslóðin sem barðist fyrir og náði fram sambærilegum lánakjörum og gerist í nágrannalöndunum,“ segir Ragnar Þór í ákalli sem hann birtir á fésbókarsíðu sinni.

Hann er í framboði til endurkjörs sem formaður VR og kveðst ekki ætla að láta sitt eftir liggja í þessari baráttu og er tilbúinn til að standa og falla með raunverulegum aðgerðum í vaxta og verðtryggingarmálum við gerð komandi kjarasamninga.

„Eina leiðin til árangurs er órjúfanleg sátt og samstaða okkar gegn þessu ömurlega óréttlæti. Ert þú með? Ert þú tilbúinn að leggja þitt af mörkum með því að standa þétt með verkalýðsforystunni í þessari vegferð? Setja strik í sandinn og segja nú er nóg komið, nú verður þessu breytt?“ segir formaður VR.