Vill afsögn: Ekki í boði að Dagur moki enn einu sinni yfir eigin mistök

Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

„Dagur B Eggertsson hefur ráðið ríkjum í ráðhúsinu í Reykjavík frá árinu 2010 og hefur setið í borgarstjórn frá árinu 2002. Hann hefur því langa reynslu. Hann hefur í valdatíð sinni gert fjölda skipulagsbreytinga sem út á við áttu að tryggja örugga verkferla borgarkerfisins, auka skilvirkni og gegnsæi en voru fyrst og fremst gerðar í þágu pólitískra samherja. Að gefa honum kost á að moka yfir eigin mistök með enn einni nefndinni og enn einni skipulagsbreytingunni er ekki lengur í boði. Sá tími er liðinn. Þolinmæðin er á þrotum,“ segir Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

„Eyðslufylleríið, sem Innri endurskoðun hefur nú staðfest í skýrslu sinni, má rekja til þess að borgarstjóri sat auðum höndum í stað þess að bregðast við alvarlegum ábendingum Innri endurskoðunar árið 2015. Að lágmarki hefði hann átt að vera vakandi fyrir því sem gert var á skrifstofu þeirri í borgarkerfinu sem heyrir beint undir hann,“ segir hún.

Marta segir að borgarstjóri eigi engin svör. „Það er engin afsökun fyrir hann að benda á að tilteknir embættismenn hafi látið undir höfuð leggjast að greina honum frá óheyrilegri framúrkeyrslu. Slíkur útúrsnúningur færir borgarstjóra ekki skjól og því miður er hann ekki trúverðugur. Miklu frekar dregur hann enn frekar úr trausti til borgarstjóra. 

 Borgarstjóri getur ekki vikið sér undan  að axla ábyrgð í þessu alvarlega máli og ber að segja af sér strax,“ segir Marta.