Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur óskað eftir stuðningi þingmanna til að kalla saman þing eigi síðar en 3. ágúst og hefur sent eftirfarandi skilaboð á alþingismenn:
„Kæru Alþingismenn
Ég kalla hér með eftir stuðningi ykkar til að kalla Alþingi saman til fundar eigi síðar en þriðjudaginn 3. ágúst n.k. vegna fjórðu bylgju Covid-19 faraldursins sem hefur verið í veldisvexti hér innan lands að undanförnu.
Lagt er til að dagskrá þingfundar verði með þeim hætti að ráðherrar svari óundirbúnum fyrirspurnum, ásamt því að heilbrigðisráðherra flytji skýrslu um stöðu mála líkt og venjan var þegar fyrri bylgjur gengu yfir.
Staðan er grafalvarleg þar sem álag á starfsemi Landspítalans, eftir því sem smitum og um leið innlögnum fjölgar, er á hættustigi og hefur verið frá miðnætti þann 23. júlí síðastliðinn.
Alþingi var kallað saman með litlum fyrirvara til að lagfæra mistök sem urðu við lagasetningu í júní síðastliðnum.
Ég tel að ef einhvertímann hefur verið þörf á að kalla þingið saman og axla ábyrgð sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar, þá sé það nú í fordæmalausum heimsfaraldri Covid-19.
Óskað er svars frá þeim þingmönnum sem hyggjast styðja beiðnina fyrir kl. 15:00 föstudaginn 30. júlí.“