Vinnumarkaðurinn eftir Covid-kreppuna mun ekki vera eins og áður

„Á tímum kreppu og allsherjar samdráttar, ekki bara á Íslandi heldur í heiminum öllum, þarf að vinna eftir skýrri framtíðarsýn. Alþýðusamband Íslands hvetur stjórnvöld og þjóðina alla til samstöðu um aðgerðir til að marka veginn frá kreppu til lífsgæða fyrir okkur öll. Stokkum spilin. Höfnum sérhagsmunum, eflum grunnstoðirnar og setjum fólk í öndvegi.“

Þannig hljóðar yfirlýsing sem forysta Alþýðusambands Íslands kynnti á blaðamannafundi í Gerðarsafni í Kópavogi í dag, þar sem kynntar voru hugmyndir sambandsins um réttu leiðina út úr kreppunni. Drífa Snædal, forseti ASÍ og Kristján Þórður Snæbjarnarson, 1. varaforseti ASÍ, kynntu framtíðarsýn ASÍ.

Tillögurnar eru í takti við stefnu alþjóðlegu verkalýðshreyfingarinnar um réttlát umskipti (e. Just Transition) og sækja í alþjóðlega umræðu um grænan samfélagssáttmála (e. Green New Deal). Unnið er eftir viðmiðum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um að atvinnusköpun skuli vera í fyrirrúmi við aðgerðir gegn kreppunni.

Drífa Snædal.

„Við vitum nú þegar að hagkerfið og vinnumarkaðurinn sem tekur við eftir Covid-kreppuna mun ekki vera eins og áður,“ sagði Drífa Snædal, forseti ASÍ. „Þetta er því ekki endurreisn í eiginlegum skilningi, heldur uppbygging til framtíðar. ASÍ stígur nú fram til að leiða stefnu fyrir þá uppbyggingu og við ætlum okkur að tryggja að hún verði í þágu almennings, ekki sérhagsmuna.“

Nánari útfærslur er að finna í þessum bæklingi.

Skjákynning frá fréttamannafundinum.