Bakgrunnur: Þann 15. september fyrir rúmum átta árum samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við innkaupadeild að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir.
„Er óendanlega þakklát samherjum mínum,“ sagði Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar af þessu tilefni, en þetta var síðasta tillagan hennar í borgarstjórn og raunar eins konar kveðjugjöf meirihlutans í borginni til hennar.
„Umræðan snérist um hvað ástandið fyrir botni Miðjarðahafs er flókið en ég benti á að það sé flókið að búa undir hernámi og komast hvergi vegna allt að 9 metra hás og 700 km. langs aðskilnaðarmúrs. Þá var rætt um mannréttindabrot vítt um heim, aðallega í Kína. Ég benti á að við gætum ekki bjargað öllu flóttafólki frá Sýrlandi og Eritreu en ef við gætum bjargað einu flóttabarni væri það þess virði. Eins er það með mannréttindin. Við þurfum að gera það sem við getum – annað getum við ekki,“ sagði Björk ennfremur við þetta tilefni.