Miðstjórn Framsóknarflokksins, sem fundað hefur í Vík í Mýrdal um helgina, hefur ekki miklar áhyggjur af þverrandi fylgi eða minnkandi stuðningi við ríkisstjórnina, heldur ályktaði sérstaklega um ánægju með framgang málaflokka sem ráðherrar flokksins fara með í stjórnarsamstarfinu.
„Miðstjórn Framsóknar lýsir yfir ánægju með framgang ýmissa málaflokka sem flokkurinn ber ábyrgð á í ríkisstjórnarsamstarfinu.
- Ný húsnæðisstefna og aukin framlög til málaflokksins munu marka leiðina fram á við. Áframhaldandi kröftug uppbygging samgönguinnviða, hvort sem um ræðir vegi, flugvellir eða hafnir, bætir búsetuskilyrði og samkeppnishæfni landsins alls.
- Skýr aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu mun styrkja umgjörð greinarinnar og búa í haginn fyrir aukna verðmætasköpun í sátt við samfélagið. Neytendamál hafa loksins verið sett á dagskrá stjórnmálanna, til að mynda með greinargóðu aðhaldi gagnvart fjármálafyrirtækjum og ný og spennandi tækifæri raungerst á sviði menningarmála.
- Góður árangur hefur náðst í að efla heilbrigðiskerfið, til að mynda með samvinnu hins opinbera og einkageirans með samningum við sérgreinalækna sem aukið hafa aðgengi sjúklinga að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Mikilvægt er að halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu í nærsamfélögum með jafnt aðgengi óháð efnahag og búsetu að leiðarljósi.
- Róttækar breytingar sem gerðar hafa verið á málefnum barna munu bæta lífsgæði þeirra og foreldra þeirra. Aðsókn í iðn-, verk- og kennaranám hefur stóraukist og unnið er að metnaðarfullum áformum um nýja sókn í þágu íþróttamála í landinu.
Miðstjórn Framsóknar vill undirstrika að hryggjarstykkið í utanríkisstefnu Íslands er vestræn samvinna og undirstrikar stuðning við Úkraínu. Miðstjórn fordæmir árásir á almenna borgara í Ísrael og Palestínu. Miðstjórn hvetur stjórnvöld til að halda á lofti mannúðlegum gildum og tala fyrir friðsamlegum lausnum.“
Fram kemur í ályktuninni að hugur flokksmanna sé hjá Grindvíkingum vegna náttúruhamfara á Suðurnesjum.
„Samfélag er samvinnuverkefni þar sem íbúar landsins standa hverjir með öðrum í kjölfar atburða sem þessara líkt og bersýnilega hefur komið í ljós. Miðstjórn Framsóknar leggur ríka áherslu á að málefni Grindvíkinga verði áfram í forgrunni innan stjórnkerfisins þar sem afkoma þeirra, húsnæðisöryggi og opinber þjónusta verði tryggð og að staðið verði með því fjölbreytta atvinnulífi sem starfrækt er á svæðinu.
Miðstjórn Framsóknar krefst þess að fjármálastofnanir sýni samstöðu með Grindvíkingum í ljósi náttúruhamfaranna og fari í raunverulegar aðgerðir sem létta undir með íbúum. Arðsemi fjármálastofnana hefur aukist verulega og telur miðstjórn Framsóknar mikilvægt að ráðist verði í þær aðgerðir sem fyrst til að eyða óvissu.
Undanfarin ár hafa falið í sér stórar áskoranir á heimsvísu þar sem heimsfaraldur, stríðsátök, loftslags- og náttúruvá hafa haft áhrif á alþjóða- og efnahagsmál. Keppikefli efnahagsstjórnarinnar er að ná verðbólgunni niður í þágu samfélagsins alls. Slíkt verkefni verður ekki leyst nema í samvinnu stjórnvalda, Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins. Lægri vextir eru stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja. Gæta verður að því að samfélagið festist ekki í vítahring sem háir stýrivextir geta leitt af sér, til að mynda með slæmum afleiðingum á húsnæðismarkaði.
Öflug og innlend matvælaframleiðsla er þjóðaröryggismál fyrir Ísland. Því verður að tryggja bændum, og sér í lagi ungum bændum, eðlileg starfsskilyrði og afkomu fyrir vinnuframlag sitt. Miðstjórn Framsóknar bindur miklar vonir við að væntanlegar tillögur starfshóps stjórnvalda um fjárhagsstöðu bænda verði til þess fallnar að snúa vörn í sókn,“ segir ennfremur í ályktuninni.