Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum fram til 31. ágúst nk. Frá þessu er greint í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Þar er vísað í eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum sem hafi borist ráðuneytinu í maí sl., en niðurstaða skýrslunnar er að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra.
Matvælastofnun fól í kjölfarið fagráði um velferð dýra að meta hvort veiðarnar geti yfirhöfuð uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Álit fagráðsins barst matvælaráðuneytinu í gær og niðurstaða þess er að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki lögum um velferð dýra.
Í ljósi þeirrar niðurstöðu er nauðsynlegt, að mati ráðherra, að fresta upphafi hvalveiðivertíðarinnar þannig að ráðrúm gefist til þess að kanna hvort unnt sé að tryggja að veiðarnar fari fram í samræmi við ákvæði laga um velferð dýra.
„Ég hef tekið ákvörðun um að stöðva hvalveiðar tímabundið í ljósi afdráttarlauss álits fagráðs um velferð dýra,” sagði matvælaráðherra. „Skilyrði laga um velferð dýra eru ófrávíkjanleg í mínum huga, geti stjórnvöld og leyfishafar ekki tryggt kröfur um velferð á þessi starfsemi sér ekki framtíð.“
Ráðuneytið mun kanna mögulegar úrbætur og lagaleg skilyrði þess að setja frekari takmarkanir á veiðarnar á grundvelli laga um velferð dýra og laga um hvalveiðar á komandi mánuðum og leita álits sérfræðinga og leyfishafa í því skyni.