Kallinn er vinamargur, sem þakkarvert er, og fær margskonar ábendingar úr heimi stjórnmálanna og úr viðskiptalífinu. Eftirfarandi skeyti um kaup Landsbankans á TM Tryggingum beið hans í pósthólfinu þegar tölvan var ræst í morgunsárið og sendandinn gjörkunnugur málum:
„Ég skil ekki hvernig ábyrgir aðilar geta verið á háa C-i með sjónarmið sem eiga sér enga lögfræðilega stoð. Staðan er þessi:
- Landsbankinn gerði fyrirvaralaust skuldbindandi tilboð í TM sem var tekið. Kaup- og söluskylda hefur komist á.
- LÍ upplýsti Bankasýslu sem kemur fram sem eigandi fyrir hönd ríkisins. Sú skylda er uppfyllt.
- Tal um skaðabætur á ekki við. Landsbankinn greiðir ekki skaðabætur, hann greiðir bara kaupverðið. Efndir „in natura” sem kallað er. Einfaldlega uppfyllir kaupsamninginn eftir efni sínu.
- Ef ríkisstjórnin (Sjálfstæðisflokkurinn) vill koma fram hefndum gegn Lilju bankastjóra getur bankasýslan sett nýtt fólk í bankaráðið á aðalfundinum sem rekur Lilju og ræður nýjan bankastjóra.
- Ef ný forysta Landsbankans vill fylgja línu úr stjórnmálum um að Landsbankinn eigi ekki TM getur bankinn bara selt TM aftur. Öll gögn klár.
- Ólíklegt er að almenningur muni verðlauna þau tilþrif með atkvæðum að reka bankastjórann og selja TM. Þvert á móti er auðvelt er að draga upp þá mynd að kaupin á TM séu dauðafæri til að auka verðgildi bankans og tryggingafélagsins. Landsbankinn hefur mikil tækifæri til að nýta og stækka TM með samtvinnun í þjónustu við sína viðskiptavini.
- Málinu lokið (Case closed).“