Sendinefnd þingmanna frá þjóðþingi Úkraínu, Verkhovna Rada, sem skipa vinahóp Íslands á þinginu heimsækir Ísland þessa dagana í boði forseta Alþingis, Birgis Ármannssonar.
Í heimsókn í Alþingi í morgun sýndi Birgir Ármannson gestum þingsalinn og á fundi þeirra ítrekaði hann stuðning Íslands og Alþingis við Úkraínu og fordæmdi harðlega ólöglegt innrásarstríð Rússlands sem nú hefur staðið í rúm tvö ár.
Á dagskrá heimsóknar eru fundir með formönnum þingflokka, utanríkismálanefnd Alþingis, forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra. Þá mun sendinefndin heimsækja forseta Íslands á Bessastaði, auk þess að eiga fundi með borgarstjóra og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis. Þá er fyrirhugað að heimsækja fyrirtæki og stofnanir á meðan heimsókn stendur.