Dr. Ásgeir Jónsson tók í dag við embætti seðlabankastjóra. Hann mætti í bankann kl. rúmlega níu í morgun og tók við lyklavöldum af Má Guðmundssyni sem gegnt hefur stöðunni undanfarin ár.
Ásgeir lauk doktorsprófi í hagfræði frá Indiana University í Bandaríkjunum árið 2001 með alþjóðafjármál, peningamálahagfræði og hagsögu sem aðalsvið. Doktorsritgerð Ásgeirs fjallaði um sveiflujöfnun yfir skamman tíma í litlu, opnu hagkerfi.
Ásgeir hefur starfað við hagfræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2004, fyrst sem lektor og síðan dósent. Hann hefur verið deildarforseti við hagfræðideild frá árinu 2015. Ásgeir hefur gegnt ýmsum öðrum ábyrgðarstörfum, meðal annars sem formaður starfshóps um endurskoðun peningastefnu og verið forstöðumaður í greiningardeild og aðalhagfræðingur Kaupþings og síðar Arion banka á árunum 2004–2011.