Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna hefur gengið til liðs við Flokk fólksins og ákveðið að gefa kost á sér í framboð fyrir flokkinn í næstu alþingiskosningum.
Ásthildur Lóa er kennari að mennt og starfar sem grunnskólakennari. Hún er gift Hafþóri Ólafssyni söluráðgjafa hjá Exton ehf og eiga þau tvo uppkomna syni.
Hún hefur verið í virk í réttindabaráttu kennara og var kjörin í bæði stjórn og samninganefnd grunnskólakennara árið 2018. Árið 2017 var hún kjörin í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna og valin formaður af stjórn. Hún hefur gegnt því hlutverki í sjálfboðavinnu meðfram fullu starfi síðan þá.