Blessuð sé minning biskupsins góða

Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup. / Ljósmynd RAX.

Karl Sigurbjörnsson, biskup, er látinn, 77 ár að aldri. Hann lést í morgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík. Frá þessu er greint í tilkynningu frá fjölskyldu hans.

Karl er einhver ástsælasti þjónn kirkjunnar í seinni tíð; kærleiksríkur maður sem vakti virðingu hvar sem hann fór. Hann útdeildi kærleiksorðum á samfélagsmiðlum með reglulegum hætti, rifjaði upp Guðs orð og vakti aðdáun fyrir það hvernig hann tókst á við erfið veikindi af æðruleysi. Karls biskups verður sárt saknað.

Karl Sigurbjörnsson fæddist 5. febrúar 1947 í Reykjavík, sonur Sigurbjörns Einarssonar, biskups og Magneu Þorkelsdóttur. Hann var sá sjötti í röð átta systkina biskupshjónanna.

Hann ólst upp í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og síðar cand. theol frá Háskóla Íslands. Karl vígðist til prestþjónustu í Vestmannaeyjum 4. febrúar 1973 og var skipaður sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1. janúar 1975 og þjónaði þar í tæp 23 ár.

Karl var kjörinn biskup Íslands árið 1997 og gegndi því embætti í 14 ár. Hann þjónaði eftir það um tíma í Dómkirkjuprestakalli.

Karl var skipaður heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Þjóðkirkjuna, sat í stjórn Prestafélags Íslands, var kirkjuþingsmaður og í kirkjuráði áður en hann var kjörinn biskup Íslands. Eftir hann liggja fjölmargar bækur og rit, frumsamin og þýdd.

Eftirlifandi eiginkona hans er Kristín Þórdís Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru Inga Rut gift Sigurði Arnarsyni, Rannveig Eva og Guðjón Davíð kvæntur Ingibjörgu Ýr Óskarsdóttur. Barnabörnin eru átta talsins. 

Blessuð sé minning biskupsins góða.